Myndirnar sem keppa í Sprettfisk 2021!
3/24/2021

Markmið Sprettfisks er að vekja athygli á ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til frekari dáða með verðlaunum sem leggja grunninn að næsta verkefni.
Sigurvegari Sprettfisksins fær í verðlaun eina milljón króna úttekt hjá Kukl í formi tækjaleigu á kvikmyndabúnaði. Kukl er stærsta tækjaleiga landsins sem sérhæfir sig í þjónustu við kvikmynda- og sjónvarpsgerð. Sigurvegarinn mun því hafa aðgang að fullkomnum tækjabúnaði fyrir næsta verkefni.

Sprettfiskur tók breytingum á síðasta ári þegar skilyrði um Íslandsfrumsýningu var aflétt og allar myndir sem voru opinberlega frumsýndar á árinu áður (2019) og síðar tekið þátt. Við þetta jókst innsendingar fjöldi til muna og voru hátt í 40 myndir sendar inn í fyrra. Yfir 50 myndir voru sendar inn nú í ár, frumsýndar 2020 eða síðar.
Það er greinilega mikið af upprennandi hæfileikafólki sem Ísland elur og var því tekin ákvörðun um að bregðast við og hækka keppenda fjölda í Sprettfisk upp í 12 myndir.
Með því vill Sprettfiskur kynna til leiks fleira efnilegt kvikmyndagerðarfólk sem er það sem Sprettfiskurinn snýst um.

Eftirtaldar 12 myndir keppa í Sprettfisk í ár:
,,Allir hundar deyja’’ – Leikstjóri – Ninna Pálmadóttir, sigurvegari Sprettfisks í fyrra.
,,Animalia’’ – Leikstjóri – Rúnar Ingi
,,Blindhæð’’ – Leikstjóri – Daníel Bjarnason
,,Bussi/Baba’’ – Leikstjóri – Bahare Ruch
,,Jökull’’ – Leikstjóri – Axel Frans Gústavsson
,,Lífið á eyjunni’’ – Leikstjóri -Viktor Sigurjónsson
,,Mánudagur’’ – Leikstjóri – Bergur Árnason
,,Milli tungls og jarðar’’ – Leikstjórar – Anna Karín Lárusdóttir & Hekla Egils
,,Spagettí’’ – Leikstjórar – Nikulás Tumi & Egill Gauti Sigurjónsson
,,Þetta ætti að batna?’’ – Leikstjóri – Alex Snær Welker Pétursson
,,Dalía“ – Leikstjóri, Brúsi Ólason
,,Eldhús eftir máli“ – Leikstjórar – Atli Arnarsson og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir