Aðgengisstefna Stockfish
Leiðarljós Stockfish er að kvikmyndalistin og menning séu ekki forréttindi fárra heldur réttur allra.
Hjólastólaaðgengi er að öllum sýningum og viðburðum Stockfish.
Inngangur
Aðgengisstefna Stockfish er aðlögun á sambærilegri stefnu Listahátíðar í Reykjavík, með leyfi.
Aðgengi og inngilding verða ekki aðskilin frá neinum þætti starfsemi Stockfish heldur eru samofin henni og hafa áhrif á allt frá ráðningu starfsfólks til markaðs- og kynningarstarfs, listrænnar dagskrárgerðar, framkvæmdar hátíðarinnar og skrásetningar á henni.
Tungumálið er í stöðugri þróun og orða- og hugtakanotkun úreldist fljótt. Stefnan og aðgerðaráætlunin er lifandi plagg sem verður endurskoðað reglulega svo það endurspegli sem best samfélagsleg viðmið hvers tíma og sýni öllum þjóðfélagshópum þá virðingu sem þeir eiga skilið.
Aðgengi og inngilding
Aðgengi
Með aðgengi er átt við að allir þjóðfélagshópar eigi greiða leið að hátíðinni, geti tekið fullan þátt bæði sem listafólk og gestir og geti notið viðburða Stockfish á eigin forsendum. Aðgengi felur í sér að fjarlægja líkamlegar, fjárhagslegar, samfélagslegar og menningarlegar hindranir. Í stefnunni er talað um aðgengi í víðum skilningi. Það felur í sér, en takmarkast þó ekki við:
- aðgengi fatlaðs fólks
- aðgengi fólks af ólíkum uppruna og hörundslit
- aðgengi fólks óháð efnahagsstöðu
- aðgengi fólks óháð kyni, kynvitund, kyneinkennum og kynhneigð
- aðgengi fólks óháð búsetu
- aðgengi fyrir fólk á öllum aldri
Inngilding
Inngilding felur í sér að viðurkenna og virða margbreytileika mannlífsins og gera ráð fyrir honum í allri starfsemi hátíðarinnar, meðal annars með markvissum stuðningi og sértækri upplýsingagjöf til þeirra sem þess þurfa. Stockfish stendur fyrir jafnrétti og jafnræði og á Stockfish er allt fólk samþykkt eins og það er. Á hátíðinni eru öll hvött til virkrar þátttöku og áhersla lögð á að hátíðin teygi sig út til jaðarsettra hópa.
Verkefnaval og dagskrárgerð
Auglýst er eftir verkefnum og íslenskum stuttmyndum í gegnum opið kall fyrir hverja hátíð.
Opið kall tryggir fjölbreyttara verkefnaval og gefur kvikmyndagerðarfólki úr ólíkum hópum færi á að kynna verkefni sín. Alþjóðlegar kvikmyndir eru valdar af sérstöku dagskrárráði, þar sem markmiðið er að bjóða upp á úrval listrænna kvikmynda sem vakið hafa athygli á erlendum hátíðum.
- Orðalag og umsóknarferli opins kalls er skýrt og undirstrikar að öllum sé velkomið að sækja um.
- Opnu kalli er komið á framfæri með ýmsum leiðum, á fleiri en einu tungumáli.
Ólíkir hópar hafa aðkomu að dagskrárgerð.
Með aðkomu fleiri að dagskrárgerð, ekki síst jaðarsettra hópa, víkkar sjóndeildarhringurinn og fjölbreytileiki eykst. Þegar kemur að málefnum jaðarsettra hópa vinnur Stockfish samkvæmt hugmyndinni „ekkert um okkur án okkar“.
- Fjölbreyttir hópar eiga beina aðkomu að dagskrárgerð hátíðarinnar.
- Listrænn stjórnandi leitar ráðgjafar hjá fulltrúum ólíkra hópa, þar með talið jaðarsettra hópa. Greitt er fyrir slíka ráðgjöf.
Sterk fjölskyldudagskrá er á hverri hátíð.
Börn og ungmenni eiga rétt á aðgengi að fyrsta flokks menningarviðburðum sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir þau.
- Á hverri hátíð er úrval viðburða sem eru sérstaklega ætlaðir börnum og ungmennum.
- Ókeypis aðgangur er að hluta fjölskylduviðburða á hverri hátíð.
Kvikmyndagerðarfólk sem tekur þátt í dagskrá Stockfish endurspeglar fjölbreytileika mannflórunnar.
Sýnileiki ólíkra hópa í kvikmyndum auðgar menningarlandslagið, ögrar staðalmyndum og skapar réttlátara samfélag.
- Gætt er að kynjaskiptingu listafólks á hátíðinni.
- Gætt er að sýnileika fatlaðs fólks, hinsegin fólks, kynja, fólks af mismunandi hörundslit (PoC), innflytjenda og annarra jaðarsettra hópa á viðburðum hátíðarinnar.
Stockfish teygir sig út í samfélagið.
Ekki eiga allir þjóðfélagshópar möguleika á að sækja listviðburði í höfuðborginni eða í hefðbundnum viðburðarýmum. Stockfish grípur til sértækra aðgerða til að ná til þeirra hópa, meðal annars með beinu streymi frá pallborðum og streymisveitu með aðgengi að myndum á vef hátíðarinnar.
Framkvæmd hátíðar
Ávallt er hugað að aðgengi í víðum skilningi við framkvæmd viðburða.
Þau sem vilja eiga að geta notið viðburða Stockfish og starfsfólk hátíðarinnar leggur sig fram um að taka tillit til ólíkra þarfa áhorfendahópa og listafólks.
- Hjólastólaaðgengi er að öllum sýningum og viðburðum Stockfish.
- Viðburðastaðir Stockfish eru alltaf valdir með aðgengi hreyfihamlaðra í huga. Óásættanlegt er að aðgengi fatlaðra gesta sé einungis um hliðar- eða bakdyr eða að fatlað listafólk geti ekki nýtt aðstöðu baksviðs eða komist upp á svið.
- Tekið er sérstakt tillit til þarfa skynsegin einstaklinga á völdum viðburðum, meðal annars með rólegum sýningum og upplýsingum fyrirfram um innihald og form viðburða, unnum í samráði við hagsmunasamtök skynsegin fólks.
- Á stærri viðburðum er greinilega merkt starfsfólk Stockfish viðstatt sem getur veitt gestum aðstoð og upplýsingar eftir þörfum.
Túlkun og textun er á eins mörgum viðburðum hátíðarinnar og við verður komið.
Tungumálakunnátta á ekki að vera fyrirstaða þess að njóta viðburða á Stockfish.
- Á hverri hátíð er táknmálstúlkun á opnunarathöfn og völdum viðburðum.
- Viðburðir á erlendum tungumálum eru textaðir á ensku eða íslensku þegar því verður við komið.
- Boðið er upp á sjónlýsingar á völdum sýningum.
Stór hluti dagskrár Stockfish er ókeypis og miðaverði er almennt stillt í hóf.
Efnahagur fólks á ekki að koma í veg fyrir að það geti notið viðburða á Stockfish.
- Að minnsta kosti fjórðungur viðburða á aðaldagskrá er án aðgangseyris.
- Á hverri hátíð er hluti fjölskyldudagskrár ókeypis.
- Boðslistum er haldið í lágmarki og aldrei er gripið til þess að bjóða fagfólki frímiða eða afslátt á síðustu stundu til að fylla tóm sæti, til að tryggja jafnræði.
- Þegar ekki verður hjá því komist að hafa hátt miðaverð stendur ákveðið hlutfall miða til boða á mun lægra verði.
- Stockfish leitar eftir samstarfi við fyrirtæki um að greiða niður miða fyrir þau sem á þurfa að halda.
Kynning á dagskrá Stockfish tekur mið af ólíkum hópum.
Í fjölbreyttri dagskrá ættu sem allra flest að finna eitthvað við sitt hæfi, og mikilvægt er að kynning á viðburðum rati til réttra hópa.
- Kynning á heildardagskrá er aðgengileg á íslensku, auðskilinni íslensku og ensku, í bæklingi og á vefsíðu hátíðarinnar.
- Við hönnun vefsíðu hátíðarinnar er aðgengi haft í fyrirrúmi, bæði í miðlun upplýsinga og útliti.
- Orðalag í öllu kynningarefni er inngildandi og eins kynhlutlaust og mögulegt er.
- Skýrum upplýsingum um aðgengi á viðburðastöðum og um almenningssamgöngur er miðlað í prentuðu kynningarefni og á vefsíðu.
- Fjölskyldudagskrá er dregin sérstaklega fram og kynnt þar sem líklegt er að hún nái til markhópsins.
- Upplýsingum um ókeypis viðburði er miðlað í almenningsrýmum, bókasöfnum og víðar.
- Þróaðar verða leiðir til að kynna viðburði fyrir hópum með innflytjendabakgrunn og öðrum jaðarsettum hópum, meðal annars með neti tengiliða.
Stockfish setur aðgengi og inngildingu á dagskrá.
Með virku samtali um aðgengi og inngildingu, á hátíðinni og í samstarfi við aðrar menningarstofnanir, listafólk og hópa sem málið varðar, getur Stockfish haft jákvæð áhrif langt út fyrir hátíðina sjálfa.
- Stockfish setur málefni aðgengis og inngildingar á dagskrá, meðal annars með sértækum viðburðum og í fjölmiðlaumfjöllun.
- Aðgengi og inngilding eru í forgangi frá upphafi samtals við samstarfsstofnanir og listafólk, og hátíðin styður samstarfsaðila í að ná þeim markmiðum.
Skrásetning á Stockfish er í höndum fjölbreytts hóps.
Ljósmyndun, textaskrif og önnur skrásetning endurspeglar alltaf ákveðið sjónarhorn. Mikilvægt er að hópurinn sem að því kemur sé ekki of einsleitur.
- Ólíkir einstaklingar annast myndatökur og aðra skrásetningu hátíðarinnar svo að fjölbreytt sjónarhorn fáist.
Innra starf
Við ráðningu starfsfólks er lögð áhersla á teymi sem endurspeglar fjölbreytileika mannlífsins.
Fjölbreyttur starfshópur býður upp á víðara sjónarhorn og er líklegri til að ná árangri.
- Allar stöður hjá Stockfish eru auglýstar lausar til umsóknar þegar við á.
- Orðalag atvinnuauglýsinga er inngildandi og höfðar til breiðs hóps, og matskvarðar taka tillit til fjölbreytileika umsækjenda.
- Stöður eru auglýstar á viðeigandi miðlum til að ná út fyrir hefðbundin mengi lista- og menningarlífsins.
Starfsfólk fær stuðning til að fylgja stefnu um aðgengi og inngildingu.
Til að mæta væntingum og þörfum gesta er mikilvægt að starfsfólk búi yfir viðeigandi þekkingu og kunnáttu.
Aðgengisfulltrúi er tilnefndur úr starfsmannahópi fyrir hverja hátíð.
- Fulltrúinn fer yfir aðgengi að hverjum viðburðastað, greinir mögulegar áskoranir og leitar leiða til að mæta þeim.
- Í samstarfi við aðra verkefnastjóra sækir fulltrúinn upplýsingar um þarfir kvikmyndagerðarfólks og finnur leiðir til að mæta þeim.
- Fulltrúinn hefur umsjón með gátlistum sem notaðir eru til að greina verkefni og þarfir listafólks og gesta út frá aðgengi, og með því hvernig aðgengisupplýsingum er miðlað.
- Starfsfólk getur leitað til fulltrúans og fengið ráðgjöf eftir þörfum.
Áætlun um einelti og áreiti er endurskoðuð fyrir hverja hátíð.
Áætlunin er endurskoðuð með aðgengi og inngildingu í huga og kynnt starfsfólki þegar það kemur til starfa. Stockfish er heilbrigður vinnustaður þar sem hvorki líðst einelti, kynferðisleg eða kynbundin áreitni, ofbeldi né annað ótilhlýðilegt háttalag.
Sett verður í forgang að finna skrifstofurými fyrir Stockfish þar sem aðgengi er til fyrirmyndar. Öll sem starfa hjá Stockfish eru metin að verðleikum og á þau er hlustað.
Endurskoðun
Stefnan er endurskoðuð og uppfærð árlega.