Sagan fjallar um hans hátign Alfredo, konung án krúnu. Mann sem liggur á dánarbeðinu og ferðast í gegnum heim minninga og lítur til baka á draum sinn um að vera slökkviliðsmaður. Kynni hans við Afonso, þjálfara á slökkviliðsstöðinni eru afdrifarík og þau kynni hefja nýjan kafla í lífi þeirra beggja. Kafla sem drifinn er áfram af ást, þrá og vilja til að breyta ástandinu.