Verðlaunahafar Stockfish

by

Stockfish kvikmynda- og bransahátíðinni lauk um síðustu helgi með fjölbreyttri og vel heppnaðri dagskrá. Boðið var upp á kvikmyndasýningar þar sem Írland var í brennidepli, auk vinnustofa, pallborðsumræðna og námskeiða fyrir fagfólk og áhugafólk um kvikmyndagerð.

Vinningshafar í Sprettfisknum voru tilkynntir við hátíðlega athöfn síðastliðinn laugardag, þar sem framúrskarandi stuttmyndaverk hlutu viðurkenningu dómnefndar. Verðlaunin eru styrkt af RÚV og Kukl.

Katla Sólness hlaut tvenn verðlaun fyrir stuttmyndina Emblu; annars vegar í flokki leikinna stuttmynda og hins vegar Evu Maríu Daniels-verðlaunin fyrir framúrskarandi kvikmyndagerð. Verðlaunin eru veitt í minningu hinnar virtu kvikmyndagerðarkonu og framleiðanda Evu Maríu Daniels. Með þeim fylgir 1,5 milljóna króna styrkur til næstu verkefna.

 

Eftirfarandi verðlaun voru veitt:

 

Í flokki stuttra heimildaverka

Íslenskur Herkúles – leikstjóri Orri Guðmundsson

 

Í flokki tónlistarmyndbanda

GKR – Stælar – leikstjóri Magnús Andersen

 

Í flokki tilraunaverka

Smokebreak – leikstjóri Rakel Andrésdóttir

 

Sérstök viðurkenning í flokki tilraunaverka

SAGES – leikstjóri Þóra Hilmarsdóttir

 

Sérstök viðurkenning í flokki tónlistarmyndbanda

Monsters of Men – Television Love – leikstjóri Erlendur Sveinsson

 

Heiðursverðlaun hátíðarinnar í ár hlaut Ari Kristinsson fyrir framúrskarandi framlag sitt til íslenskrar kvikmyndagerðar. Auk þess heiðraði stjórn Félags kvikmyndastjóra Ara sérstaklega fyrir störf hans og áhrif á fagið. Í tilefni þess var kvikmyndin Börn náttúrunnar, þar sem Ari var tökustjóri, sýnd á hátíðinni.

Hátíðinni lauk með þéttri dagskrá í Norræna húsinu. Á laugardeginum fór fram vel sótt bransaráðstefna þar sem fagfólk úr kvikmyndageiranum kom saman og ræddi stöðu og framtíð greinarinnar á Íslandi. Umræðurnar voru líflegar og bar mikið á áhyggjum af miklu atvinnuleysi í greininni. Þar kom meðal annars fram að til að efla greinina þyrfti að hækka endurgreiðsluhlutfall kvikmyndagerðar í 35% þvert á verkefni, en það er nú almennt 25% og aðeins 35% fyrir stærstu verkefnin. Einnig var kallað eftir auknum framlögum til Kvikmyndasjóðs og fjármögnun sjónvarpssjóðs sem stendur nú tómur.

 

Bent var á að Kvikmyndasjóður væri nú einungis um þriðjungur af stærð sambærilegra sjóða, svo sem Rannsóknarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs, sem áður stóðu jafnfætis. Þá var vísað til rannsókna sem sýna að fyrir hverja krónu sem fjárfest er í kvikmyndagerð skilar sér margfalt til baka í ríkissjóð. Fram komu gagnrýnisraddir um skort á áhuga og skilningi stjórnvalda á mikilvægi greinarinnar.

 

Næsta pallborð var fulltrúm frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi þar sem m.a. Nýr forstöðumaður grænlensku Kvikmyndamiðstöðvarinnar Inunnguak Petrussen tók þátt í umræðum. Þar kom fram mikill vilji til að sameina fagið þvert á landamæri þessara þriggja landa, m.a. með lofbrú sambærilegri þeirri sem tónlistarfólk getur sótt um styrki í.

 

Á lokadegi hátíðarinnar, sunnudaginn, fór fram vel sótt barnadagskrá í Norræna húsinu þar sem fram komu fulltrúar frá Tulipop og Ormhildarsögu. Í Bíó Paradís var jafnframt frumsýnd kvikmyndin Jóhanna af Örk eftir Hlyn Pálmason, sem nú er komin í almennar sýningar. Einnig var boðið upp á einstaka kvikmyndaupplifun með 7 og hálfs tíma sýningu á Satantangó eftir Béla Tarr, sem lést á árinu.

 

Stockfish hátíðin hefur enn á ný sannað gildi sitt sem mikilvægur vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk og kvikmyndaáhugafólk, og hlakkar skipuleggjendum til að taka á móti gestum að ári