Aðgengisstefna Stockfish

Leiðarljós Stockfish Kvikmynda- og bransahátíðar í Reykjavík er að kvikmyndalistin og menning séu ekki forréttindi fárra heldur réttur allra.

Aðgengisstefna Stockfish er aðlögun á sambærilegri stefnu Listahátíðar í Reykjavík með leyfi.

Aðgengi og inngilding verða ekki aðskilin frá neinum þætti starfsemi Stockfish heldur eru samofin henni og hafa áhrif á allt frá ráðningu starfsfólks til markaðs- og kynningarstarfs, listrænnar dagskrárgerðar, framkvæmdar sjálfrar hátíðarinnar og skrásetningar á henni.

Tungumálið er í stöðugri þróun og orða- og hugtakanotkun úreldist fljótt. Stefna þessi og aðgerðaráætlun er lifandi plagg sem verður endurskoðað reglulega svo það endurspegli sem best samfélagsleg viðmið hvers tíma og sýni öllum þjóðfélagshópum þá virðingu sem þeir eiga skilið.

Aðgengi
Með aðgengi er átt við að allir þjóðfélagshópar eigi greiða leið að hátíðinni, geti tekið fullan þátt bæði sem listafólk og gestir og geti notið viðburða Stockfish á eigin forsendum. Aðgengi felur í sér að fjarlægja líkamlegar, fjárhagslegar, samfélagslegar og menningarlegar hindranir.

Í stefnunni er talað um aðgengi í víðum skilningi. Það felur í sér, en takmarkast þó ekki við:

  • aðgengi fatlaðs fólks
  • aðgengi fólks af ólíkum uppruna og hörundslit
  • aðgengi fólks óháð efnahagsstöðu.
  • aðgengi fólks óháð kyni, kynvitund, kyneinkennum og kynhneigð.
  • aðgengi fólks óháð búsetu
  • aðgengi fyrir fólk á öllum aldri

Inngilding

Inngilding felur í sér að viðurkenna og virða margbreytileika mannlífsins og gera ráð fyrir honum í allri starfsemi hátíðarinnar, meðal annars með markvissum stuðningi og sértækri upplýsingagjöf til þeirra sem þess þurfa. Stockfish stendur fyrir jafnrétti og jafnræði og á Stockfish er allt fólk samþykkt eins og þau eru. Á hátíðinni eru öll hvött til virkrar þátttöku og áhersla lögð á að hátíðin teygi sig út til jaðarsettra hópa.

Verkefnaval og dagskrárgerð

Auglýst er eftir verkefnum og íslenskum stuttmyndum í gegnum opið kall fyrir hverja hátíð.
Opið kall tryggir fjölbreyttara verkefnaval og gefur kvikmyndagerðarfólki úr ólíkum hópum færi á að kynna verkefni sín fyrir stjórnendum. Alþjóðlegar kvikmyndir eru þó valdar inn af sérstöku dagskrárráði, þar sem markmiðið er að bjóða upp úrval listrænna kvikmynda sem vakið hafa athygli á erlendum kvikmyndahátíðum undanfarinna ára.

  • Orðalag og umsóknarferli opins kalls er skýrt og undirstrikar að öllum sé velkomið að sækja um.
  • Opnu kalli er komið á framfæri með ýmsum leiðum, á fleiri en einu tungumáli.

Ólíkir hópar hafa aðkomu að dagskrárgerð.
Með aðkomu fleiri að dagskrárgerð hátíðarinnar, og þá ekki síst jaðarsettra hópa, víkkar sjóndeildarhringurinn og fjölbreytileiki eykst. Þegar kemur að málefnum jaðarsettra hópa vinnur Stockfish samkvæmt hugmyndinni „ekkert um okkur án okkar“.

  • Fjölbreyttir hópar eiga beina aðkomu að dagskrárgerð hátíðarinnar.
  • Listrænn stjórnandi leitar ráðgjafar hjá fulltrúum ólíkra hópa, þar með talið jaðarsettra hópa. Greitt er fyrir slíka ráðgjöf.

Sterk fjölskyldudagskrá er á hverri hátíð.
Börn og ungmenni eiga rétt á aðgengi að fyrsta flokks menningarviðburðum sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir þau.

  • Á hverri hátíð er úrval viðburða sem eru sérstaklega ætlaðir börnum og ungmennum.
  • Ókeypis aðgangur er að hluta fjölskylduviðburða á hverri hátíð.

Kvikmyndagerðarfólk sem tekur þátt í dagskrá Stockfish endurspeglar fjölbreytileika mannflórunnar.

Sýnileiki ólíkra hópa í kvikmyndum, auðgar menningarlandslagið, ögrar staðalmyndum og skapar réttlátara samfélag.

  • Gætt er að kynjaskiptingu listafólks á hátíðinni.
  • Gætt er að sýnileika fatlaðs fólks, hinsegin fólks, kynja, fólks af mismunandi hörundslit (PoC), innflytjenda og annarra jaðarsettra hópa á viðburðum hátíðarinnar.

Stockfish teygir sig út í samfélagið.

Ekki eiga allir þjóðfélagshópar möguleika á að sækja listviðburði í höfuðborginni og/eða í hefðbundnum viðburðarýmum. Stockfish grípur til sértækra aðgerða til að ná til þeirra hópa, m.a. Með beinu streymi frá pallborðum og streymisveitu með aðgengi að myndum á vef hátíðarinnar.

Metnaðarfull dagskrá Stockfish endurspeglar fjölbreytileika mannlífsins hverju sinni og tekur mið af ólíkum þörfum kvikmyndagerðarfólks og áhorfendahópa. 

Framkvæmd hátíðar

Ávallt er hugað að aðgengi í víðum skilningi við framkvæmd viðburða.
Þau sem vilja eiga að geta notið viðburða Stockfish og starfsfólk hátíðarinnar leggur sig fram um að taka tillit til ólíkra þarfa áhorfendahópa og listafólks.

  • Viðburðastaðir Stockfish eru alltaf valdir með aðgengi hreyfihamlaðra í huga. T.a.m. er óásættanlegt að aðgengi fatlaðra gesta sé einungis um hliðar- eða bakdyr eða að fatlað listafólk geti ekki nýtt aðstöðu baksviðs eða komist upp á svið.
  • Tekið er sérstakt tillit til þarfa skynsegin einstaklinga á völdum viðburðum, meðal annars með því að bjóða upp á rólegar sýningar og veita nauðsynlegar upplýsingar fyrirfram um innihald og form viðburða. Þessar upplýsingar verða unnar í samráði við hagsmunasamtök skynsegin fólks.
  • Á stærri viðburðum er starfsfólk á vegum Stockfish viðstatt, greinilega merkt, sem veitt getur gestum aðstoð og upplýsingar eftir þörfum.

Túlkun og textun er á eins mörgum viðburðum hátíðarinnar og við verður komið.
Tungumálakunnátta á ekki að vera fyrirstaða þess að njóta viðburða á Stockfish

  • Á hverri hátíð er táknmálstúlkun á opnunarathöfn sem og á völdum viðburðum.
  • Viðburðir á erlendum tungumálum eru textaðir á ensku eða íslensku þegar því verður við komið.
  • Boðið er upp á sjónlýsingar á völdum sýningum á hátíðinni.

Stór hluti dagskrár Stockfish er ókeypis og þannig aðgengilegur efnaminni hópum. Miðaverði er almennt stillt í hóf.
Efnahagur fólks á ekki að koma í veg fyrir að það geti notið viðburða á Stockfish.

  • Að minnsta kosti fjórðungur viðburða á aðaldagskrá Stockfish er án aðgangseyris.
  • Á hverri hátíð er hluti fjölskyldudagskrár ókeypis.
  • Boðslistum er haldið í lágmarki hjá Stockfish og aldrei gripið til þess að bjóða fagfólki frímiða eða afslátt á síðustu stundu til þess að fylla tóm sæti. Þetta er gert til þess að tryggja jafnræði.
  • Miðaverði á hátíðina er almennt stillt í hóf. Þegar ekki verður hjá því komist að hafa hátt miðaverð skal ávallt sjá til þess að ákveðið hlutfall miða standi til boða á mun lægra verði.
  • Stockfish leitar eftir samstarfi við fyrirtæki um að greiða niður miða fyrir þau sem á þurfa að halda.

Kynning á dagskrá Stockfish tekur mið af ólíkum hópum.
Í fjölbreyttri dagskrá ættu sem allra flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni. Mikilvægt er að kynning á viðburðum rati til réttra hópa.

  • Kynning á heildardagskrá Stockfish er aðgengileg á íslensku, auðskilinni íslensku og ensku í bæklingi og vefsíðu hátíðarinnar.
  • Við hönnun heimasíðu hátíðarinnar er aðgengi haft í fyrirrúmi, bæði hvað varðar miðlun upplýsinga og útlit.
  • Orðalag í öllu kynningarefni er inngildandi og haft eins kynhlutlaust og mögulegt er.
  • Skýrum upplýsingum um aðgengi á viðburðastöðum er miðlað í prentuðu kynningarriti hátíðarinnar sem og á heimasíðu.
  • Upplýsingum um almenningssamgöngur á viðburðastaði er miðlað á skýran hátt í prentuðu kynningarefni og á netinu.
  • Fjölskyldudagskrá er dregin sérstaklega fram í kynningu á hátíðinni og henni komið á framfæri þar sem líklegt er að hún nái til markhópsins.
  • Upplýsingum um ókeypis viðburði á Stockfish er miðlað í almenningsrýmum, bókasöfnum og víðar til þess að ná til breiðs hóps.
  • Þróaðar verða leiðir til þess að kynna viðburði hátíðarinnar fyrir hópum með innflytjendabakgrunn og öðrum jaðarsettum hópum. Komið verður upp neti tengiliða inn í valda hópa sem vinna með hátíðinni að miðlun upplýsinga.

Stockfish setur aðgengi og inngildingu á dagskrá.
Með virku samtali um aðgengi og inngildingu á hátíðinni sjálfri og í samstarfi við aðrar menningarstofnanir, listafólk og hópa sem málið varðar getur Stockfish haft jákvæð áhrif langt út fyrir hátíðina sjálfa.

  • Stockfish setur málefni aðgengis og inngildingar á dagskrá á hátíðinni, meðal annars með sértækum viðburðum og í fjölmiðlaumfjöllun.
  • Stockfish setur aðgengi og inngildingu í forgang allt frá upphafi samtals við samstarfsstofnanir og listafólk. Hátíðin hvetur þannig samstarfsaðila til að standa við skuldbindingar hennar í þessum efnum og styður við þá til þess að ná þeim markmiðum.  

Skrásetning heimilda um Stockfish er í höndum fjölbreytts hóps.
Ljósmyndun, textaskrif og önnur skrásetning á hátíðinni endurspeglar alltaf ákveðið sjónarhorn. Mikilvægt er að gæta þess að hópurinn sem að því kemur sé ekki of einsleitur og að farnar séu fjölbreyttar leiðir til skrásetningar á sögu hátíðarinnar.

  • Ólíkir einstaklingar eru fengnir til að annast myndatökur og aðra skrásetningu hátíðarinnar svo að fjölbreytt sjónarhorn fáist.

Aðgengi og inngilding eru höfð að leiðarljósi við alla framkvæmd Stockfish. Listafólki, áhorfendum og samstarfsaðilum er mætt á eigin forsendum og ætíð leitast við að öll fái notið sín.

Innra starf

Við ráðningu starfsfólks er lögð áhersla á að setja saman teymi sem endurspeglar fjölbreytileika mannlífsins að eins miklu marki og hægt er.
Fjölbreyttur starfshópur býður upp á víðara sjónarhorn og er líklegri til að ná árangri.

  • Allar stöður hjá Stockfish eru auglýstar lausar til umsóknar þegar við á.
  • Orðalag atvinnuauglýsinga er haft inngildandi og þannig að það höfði til breiðs hóps. Matskvarðar taka einnig tillit til fjölbreytileika umsækjenda.
  • Stöður eru auglýstar á viðeigandi miðlum hverju sinni til þess að kasta sem stærstu neti og ná út fyrir hefðbundin mengi lista- og menningarlífsins.

Starfsfólk fær stuðning til þess að fylgja stefnu um aðgengi og inngildingu.
Til þess að geta mætt væntingum og þörfum gesta er mikilvægt að starfsfólk búi yfir viðeigandi þekkingu og kunnáttu.

Aðgengisfulltrúi er tilnefndur úr starfsmannahópi fyrir hverja hátíð.
Sú starfsmanneskja sem best er til þess bær úr teymi hátíðarinnar tekur að sér hlutverk aðgengisfulltrúa.

  • Fulltrúinn fer yfir aðgengi að hverjum viðburðastað, greinir mögulegar áskoranir og leitar leiða til að mæta þeim.
  • Í samstarfi við aðra verkefnastjóra sækir fulltrúinn upplýsingar um þarfir kvikmyndagerðarfólks og finnur leiðir til þess að mæta þeim.
  • Aðgengisfulltrúi hefur umsjón með þróun og endurskoðun gátlista sem verkefnastjórar nota til þess að greina verkefni og þarfir listafólks og gesta út frá aðgengissjónarmiði. Sérstakur gátlisti verður þróaður í samstarfi við kynningarstjóra fyrir það hvernig og hvaða aðgengisupplýsingum er miðlað á heimasíðu og í kynningarefni.
  • Starfsfólk getur leitað sérstaklega til fulltrúans og fengið viðeigandi ráðgjöf eftir þörfum.

Áætlun Stockfish um einelti og áreiti er endurskoðuð fyrir hverja hátíð með aðgengi og inngildingu í huga og kynnt fyrir starfsfólki þegar það kemur til starfa.
Stockfish er heilbrigður vinnustaður þar sem hvorki líðst einelti, kynferðisleg/kynbundin áreitni, ofbeldi né annað ótilhlýðilegt háttalag í garð starfsfólks.

Sett verður í forgang að finna skrifstofurými fyrir Stockfish þar sem aðgengi er til fyrirmyndar.

Starfsfólk Stockfish er fjölbreyttur hópur sem er vel upplýstur um aðgengi og inngildingu og býr við starfsaðstæður sem henta hverju þeirra. Öll sem starfa hjá Stockfish eru metin að verðleikum og á þau er hlustað.

Stefnan er endurskoðuð og uppfærð árlega