Ari Kristinsson

Stockfish kvikmynda- og bransahátíðin tilkynnir með stolti að kvikmyndagerðarmaðurinn Ari Kristinsson er heiðursgestur hátíðarinnar í ár.

Af þessu tilefni sýnir hátíðin Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson en Ari var tökustjóri myndarinnar. Ari verður með meistarspjalla eftir myndina stýrt af Tómas Tómassyni, formanni félags kvikmyndatökumanna ÍKS.

Tryggðu þér miða hér.

Ari hefur um áratugaskeið verið einn af áhrifamestu kvikmyndagerðarmönnum Íslands og lagt sitt af mörkum til íslenskrar kvikmyndagerðar sem kvikmyndatökustjóri, framleiðandi, klippari, handritshöfundur og leikstjóri.

Ari útskrifaðist frá Nýlistardeild Myndlistar- og handíðarskóla Íslands árið 1979 og hélt síðar til náms við Listaháskólinn í Kaliforníu (California Institute of the Arts) á árunum 1980 og 1981. Að námi loknu hóf hann störf við kvikmyndagerð hér á landi og hefur síðan átt aðkomu að fjölda merkra kvikmynda sem hafa mótað íslenska kvikmyndasögu.

Sem kvikmyndatökustjóri hefur Ari tekið þátt í gerð fjölda kvikmynda, þar á meðal Rokk í Reykjavík, Nýju lífi, Löggulífi, Skyttunum, Magnúsi, Börnum náttúrunnar, Bíódögum, Cold Fever, Djöflaeyjunni, Myrkrahöfðingjanum, Mömmu Gógó og Sumarlandinu.

Myndin Börn náttúrunnar, í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar, var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bestu erlendu kvikmyndina árið 1992. Fyrir sama verk hlaut Ari verðlaun fyrir bestu listrænu stjórnun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Montréal. Árið 2010 var hann einnig tilnefndur til Edduverðlauna fyrir kvikmyndatökustjórn á Mömmu Gógó.

Ari hefur jafnframt gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks kvikmyndaiðnaðar. Hann var formaður Félags kvikmyndatökustjóra í átta ár, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda í átta ár, sat í kvikmyndaráði í átta ár og er einn af stofnendum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Þá var hann einnig meðal stofnenda Bíó Paradís og fyrsti stjórnarformaður bíósins. Ari starfaði sem ráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands 2012 til 2020. Auk þess starfaði Ari hjá Íslenku Kvikmynda samsteypunni , Hrif ehf og Bergmyndum

Með því að heiðra Ara Kristinsson viðurkennir Stockfish einstakt framlag hans til íslenskrar kvikmyndagerðar og áhrif hans á þróun kvikmyndamenningar á Íslandi.