Kvikmyndagerð og dans eiga það sameiginlegt að vera listform í stöðugri hreyfingu.
Í námskeiðinu er hugtakið líkamstjáning (e. body language) rannsakað í gegnum tungumál
hreyfingarinnar og miðlað í gegnum kvikmyndamiðilinn — hvort sem hreyfingin á sér stað
fyrir framan eða aftan myndavélina.