Adam er sjómannssonur sem býðst að stunda nám við Al-Azhar háskólann í Kaíró sem er þungamiðja innan valdahrings Súnní múslima í Egyptalandi. Stuttu eftir komu sína til Kaíró deyr skyndilega æðsti trúarleiðtogi háskólans, Grand Imam, og Adam verður fljótt peð í miskunnarlausri valdabaráttu milli trúar- og stjórnmálaelítunnar í Egypalandi.