Silent Trilogy

Þessi glaðbeitti óður til frumkvöðla kvikmyndanna sameinar þrjár þöglar stuttmyndir eftir finnska leikstjórann Juho Kuosmanen: Scrap-Mattila and the Beautiful Woman (2012), The Moonshiners (2017), og A Planet Far Away (2023). Myndirnar fjalla um syrgjandi ekkil, landabruggara með svín og vitavörð sem ferðast út í geim – myndirnar eru fullar af húmor, beittum sjarma og einstöku nærveru leikkonunnar Jaana Paananen. Fyrst og fremst eru þær hlý og vonarrík hátíð fólks á jaðri samfélagsins.

Sýningartímar

  • 10. apríl 17:00
Leikstjóri:
Juho Kuosmanen
Lengd:
59 mín
Ár:
2024
Tungumál:
Finnska