Opnað hefur verið fyrir innsendingar í Sprettfisk – stuttmyndakeppni Stockfish

Kvikmynda- og bransahátíðin Stockfish hefur opnað fyrir innsendingar í Sprettfisk, stuttmyndakeppni hátíðarinnar. Sprettfiskur er vettvangur fyrir efnilega kvikmyndagerðarmenn og veitir þeim tækifæri til að kynna verk sín fyrir innlendum og erlendum kvikmyndaáhorfendum. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum, fyrir leiknar stuttmyndir, heimildastuttmyndir, tónlistarmyndbönd og tilraunakenndar stuttmyndir. Bestu stuttmyndirnar verða sýndar á RÚV og hljóta sigurvegararnir auk þess peningaverðlaun og aðgang að tækjabúnaði frá KUKL tækjaleigu.

Skilafrestur mynda er til 25.febrúar næstkomandi og sótt er um í gegnum Filmfreeway.com/Shortfish. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar www.stockfishfestival.is

Stockfish mun fara fram dagana 3.–13. apríl 2025 í Bíó Paradís með fjölbreyttri dagskrá kvikmyndasýninga, viðburða og bransadaga, sem fara fram bæði í Bíó Paradís og víðar í borginni.

Ný framkvæmdarstjórn hefur tekið við hátíðinni en það eru kvikmyndagerðarkonan og fyrrum stjórnandi Northern Wave Film Festival, Dögg Mósesdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, stjórnandi bókmenntahátíðarinnar Queer Situations og fyrrum dagskrárgerðarmaður á Rás 1.