Sprettfiskur er haldinn í fjórum keppnisflokkum þar sem leikið efni, heimildaverk, tilraunaverk og tónlistarmyndbönd eru aðskilin. Flokkarnir eru fjórir til að endurspegla þá grósku og fjölbreytni sem er í kvikmyndagerð hér á landi. Markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni. Verðlaunin koma frá KUKL tækjaleigu og RÚV. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og aðgengilegar í spilara RÚV.

Narrative

Frávillingur

Leikstjóri: Soffía Mjöll Sæmundsdóttir

Framleiðandi: Mads Friis Becquet

Þegar sækja þarf týnt fé af fjöllunum, býðst ung sveitastelpa til þess að fara í ferðina í fylgd nágranna síns, í von um að sanna gildi sitt fyrir sveitungum sínum.

Submit

Leikstjóri: Samúel Lúkas

Framleiðandi: Kristín Ósk Sævarsdóttir and Lea Ævarsdóttir

Upprennandi og örvæntingarfullur leikstjóri kynnist dularfullum agskrárstjóra

kvikmyndahátíðar sem leiðir hann inn á óvænta og siðferðilega flókna braut.

Embla

Leikstjóri: Katla Sólnes

Framleiðandi: Jóna Gréta Hilmarsdóttir

Af miklum vilja listamanns er lífi blásið í konu gerða úr við. Ástarsamband þeirra tekur stakkaskiptum þegar hún brennir fingur sinn og hið fullkomna verk spjallað.

Farewell, Row 9 Seat 1

Leikstjóri: Jun Gunnar Lee

Producer: Jun Gunnar Lee, Reynir Skarp and Inga Malen Andersen

Eftir að hafa verið hafnað í kvikmyndaskóla finnur ungi bíóstarfsmaðurinn innblástur og von á ný í gegnum sérvitan sýningarstjóra og töfra klassískra kvikmynda.

Coming Home

Leikstjóri: Salvör Bergmann

Framleiðandi: Salvör Bergmann

Ungur fíkniefnasali þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum þegar móðir hans fær dagvistarleyfi úr fangelsi til þess að eyða deginum með honum. Þegar hann reynir sitt besta til að sópa líferni sínu undir teppið koma aðgerðir hans af stað atburðarás sem hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þá sem standa honum næst. 

Eliten

Leikstjóri: Lovísa Dröfn

Executive Producer: Gabriela Uweis

Á toppnum (Eliten) segir frá Dagmari, ungri afreksfimleikakonu sem stefnir ótrauð á landsliðið. Þegar henni er boðið á landsliðsæfingu virðist draumurinn vera innan seilingar, en á æfingunni lendir hún illa í erfiðu stökki. Þó hún sleppi án líkamlegra meiðsla, situr hún eftir með huglæga hindrun sem gerir það að verkum að hún getur einfaldlega ekki framkvæmt stökkin sem hún er vön að gera vandræðalaust. 

Til þess að sigrast á óttanum og eiga möguleika á því að verða valin í landsliðið verður Dagmar að finna gleðina í fimleikunum aftur, og minna sig á fyrir hvern hún stundar íþróttina.

Documentary

Lúpína

Leikstjóri: Orri Guðmundsson

Myndin fylgir Gumma Emil, umdeildum einkaþjálfara og áhrifavaldi. Þegar hann opnar dyrnar að daglegu lífi sínu fá áhorfendur að sjá hvað raunverulega drífur hann áfram.

Rífast

Leikstjóri: Sindri Sigurðarson

Framleiðandi: Sindri Sigurðarson

Rífast er heimildamynd um tónlistar tvíeykið Kusk og Óvita. Við fylgjum þeim í gegnum ferlið að gefa út plötu, halda útgáfu tónleika og spila á Iceland Airwaves. Í gegnum viðtöl, tónlist og myndefni fáum við innsýn í vináttu þeirra, sameiginlega sköpun og drauminn um að lifa á tónlistinni. Rífast er einlæg mynd um ástríðu, metnað og vináttu.

Family Threads

Leikstjóri: Holly Evans

Fjölskyldu Þræðir flétta saman minningum elstu einstaklinga fjölskyldu hennar á Íslandi með fíngerðum hreyfimyndum úr ullartrefjum.  Þræðir myndanna gefa okkur vef minninga um ást, gleði og missi.

Life Under the Mountain

Leikstjóri: Alice Watterson

Árið 1868 eyddist bæjarstæði höfuðbólsins Fells í Suðursveit í öflugu jökulhlaupi, sem varpaði skýru ljósi á hið ómstríða samband milli Breiðamerkurjökuls og þess bændasamfélags sem hafði þrifist í skjóli hans.

Experimental

Smokebreak

Leikstjóri: Rakel Andrésdóttir

Kona hittir fisk í sígó pásunni sinni og fer með hann í ferðalag. 

In the Name of the Past, Present and Future

Leikstjóri: Halldóra Líney Finnsdóttir

Framleiðandi: Halldóra Líney Finnsdóttir

Hvern eða hvað tilbiður vestrið? Ef Guð er dauður hvað hefur komið í hans/hennar stað?

Do You Believe Me?

Leikstjóri: Anna Lovísa

Framleiðandi: Anna Lovísa

SAGES

Leikstjóri: Þóra Hilmarsdóttir @thorahilmars

Executive producer: Erlendur Sveinsson 

Framleiðandi: Sigríður Theódóra Pétursdóttir

SAGES er tónlistarmynd sem unnin er við nýtt samstarf listamannanna Ólafs Arnalds og Loreen. Handrit og leikstjórn er í höndum Þóru Hilmarsdóttur. Myndin er innblásin af sögu Frau Troffea sem árið 1518 byrjaði skyndilega að dansa atburður sem var upphaf dansplágunnar í Strasbourg.

The Question of Landscape

Leikstjóri: Irene Gomez Gomez Emilsson

Framleiðandi: Charles Meunier

The Question of Landscape (2025), is an experimental short film by Irene Gómez Emilsson. It is a moving landscape shot through a car window with a bespoke sound design and voice-over featuring French philosopher Maurice Merleau-Ponty’s text Eye and Mind translated into Icelandic. The installation aims to immerse the audience in its hypnotic movement and aural qualities to ultimately materialise the philosopher’s core concepts of ‘the flesh’ and of an infinite question, the question of landscape

DABB

Leikstjóri: Vigdís Ósk Howser Harðardóttir

Framleiðandi: Kristján Ernir Björgvinsson and Vigdís Ósk Howser Harðardóttir

Árið er 2035. Fannar mætir í fyrsta sinn í matarboð til tengdaforeldra sinna ásamt

kærustu sinni, Lilju. Heimilið virðist eðlilegt á yfirborðinu, en undir kraumar eitthvað

óþægilegt. Á meðan borgarastyrjöld ríkir í Bandaríkjunum og hungur og fátækt hefur

aldrei verið meiri í heiminum eru Fannar og Lilja einfaldlega á leið í matarboð.

Music Video

Tími, ekki líða (Official Video)

Leikstjóri: Anna Róshildur B. Bøving and Simon Bendroth

Framleiðandi: Anna Róshildur B. Bøving

GKR – Stælar

Leikstjóri: Magnus Andersen

GKR vaknar einn um borð í skemmtiferðaskipi þar sem atburðirnir taka fljótt óvænta stefnu.

Television Love

Leikstjóri: Erlendur Sveinsson

Framleiðandi: Helena Hafsteinsdóttir and Kristín Larsdóttir Dahl

The conversation, a journey through time, landscapes & aesthetics. Television Love. 

She Knows

Leikstjóri: Tómas Nói Emilsson

Framleiðandi: Tómas Nói Emilsson

Þögull áhorfandi með sársaukafulla fortíð, stígur inn í pókerleik hástéttarinnar þar sem óvænt atburðarás leiðir hann aftur í fortíð sem hann hafði yfirgefið.

Mirror

Leikstjóri: Gyða Valtýsdóttir and Hanna Hulda Hafþórsdóttir

Framleiðandi: Gyða Valtýsdóttir and Hanna Hulda Hafþórsdóttir

Tónlistarmyndbandið við lagið Mirror eftir Gyðu Valtýsdóttir er ljóðrænan nálgun á efnisvið lagsins en það fjallar um það hvernig við sjáum okkur sjálf í öðrum en eigum þó erfiðast með þá spegla sem standa okkur næst.