Verðlaunahafar Stockfish

by

Alþjóðlegu kvikmynda- og bransahátíðinni Stockfish lauk um helgina en þetta var í ellefta  sinn sem hátíðin er haldin í Bíó Paradís. Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum fyrir íslenskar stuttmyndir en að auki voru veitt tvenn heiðursverðlaun. Verðlaunahafar hátíðarinnar voru Bókin eftir Flóka Larssen í flokki heimildamynda, Í takt eftir Hönnu Hulda Hafþórsdóttir sem var einnig handhafi Evu Maríu Daníels verðlaunanna sem eru veitt í minningu framleiðandans Evu Maríu Daníelsdóttur. Godspeed eftir Klāvs Liepiņš hlaut verðlaun í flokki tilraunakenndra mynda og 

Tónlistarmyndbandið “Myndi Falla” með Úlfur Úlfur í leikstjórn Magnúsar Leifssonar hlaut verðlaun í flokki tónlistarmyndbanda. Að auki voru tvær myndir sem hlutu sérstaka viðurkenningu en það voru heimildarmyndir “Ég er bara Elma” eftir Elmu Dís Davíðsdóttur og leikna myndin MERKI Í leikstjórn Rúnars Inga Einarssonar.

 

Heiðursverðlaunahafar hátíðarinnar voru kanadíska/ítalska leikstýran Floria Sigismondi og Dóra Einarsdóttir búningahönnuður. Báðar voru heiðraðar fyrir ómetanlegt framlag sitt til kvikmyndagerðar.

 

Aðsókn á hátíðina var framar björtustu vonum. Frítt var inn á hátíðina og í fyrsta skipti frá upphafi var ákveðið að bjóða bíógestum að greiða eftir getu. 

Hátíðin var með ítalskan fókus en á sama tíma var súrrealískur andi yfir hátíðinni, þar sem David Lynch var heiðraður með pallborði og styttu sem er til sölu í Bíó Paradís. Boðið var upp á fjölda viðburða og námskeiða á vegum hátíðarinnar, þ.m.t. málþing um fötlun og inngildingu í bíó, táknmálstúlkaðar og sjónlýstar kvikmyndir, handritasmiðju, meistarspjöll bæði við heiðursgestinn Floriu Sigismondi en líka við Clare Langan sem hefur um áratugabil gert listrænar stuttmyndir á Íslandi. Hátíðin var með viðburði í Hafnar.haus og tónlistarmiðstöð þar sem var fullt hús í pallborði um kvikmyndatónlist og samningagerð. Lokahóf hátíðarinnar fór fram á laugardaginn á snekkjunni Amelíu Rós í boði Seatours þar sem gestum hátíðarinnar var boðið í siglingu undir rauðu tungli.