Kvikmyndir á Íslandi – Hvað um okkur?

Dagssetning

Föstudagurinn 31. mars

Staðssetning

GRÓSKA

Tími

11:00 - 14:00

Kynnir

Wendy Mitchell

Hér verður farið yfir helstu fjármögnunarmöguleika kvikmynda og sjónvarpsefnis á Íslandi auk þess að kynntir helstu möguleikar í samframleiðslu. Viðburðurinn er í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð, Film in Iceland og sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi.

Dagskráin saman stendur af fimm liðum

1. Kvikmyndamiðstöð Ísland– nýráðinn forstöðumaður, Gísli Snær Erlingsson, kynnir sig og Sigurrós Hilmarsdóttir, framleiðslustjóri Kvikmyndamiðstöð Íslands gefur stutta kynningu á umsóknarkerfinu.

2. Ísland, Evrópski kvikmyndasjóðurinn og Norræni sjónvarps-og kvikmyndasjóðurinn
Farið verður yfir samframleiðslumöguleika íslenskra kvikmynda og sjónvarpsefnis. Stutt kynning á Evrópska kvikmyndasjóðnum (Eurimages) og Evrópusamningnum (European Convention) sem og kynning á Norræna sjónvarps-og kvikmyndasjóðnum. Báðir þessir sjóðir hafa veitt íslensku verkefnum verulegan fjárstuðning í gegn um árin.

Anna María Karlsdóttir, fulltrúi Íslands í Eurimage kynnir.

3. Einar Hansen Tómasson kynnir „Film in Iceland“
Film in Iceland hefur það að meginmarkmiði að kynna Ísland sem stórkostlegan tökustað fyrir erlendar kvikmyndir og sjónvarpsefni sem og að kynna ávinning þann sem framleiðslan getur haft af 35% endurgreiðslu af öllum þeim kostnaði sem fellur til við framleiðsluna á Íslandi.
„Film in Iceland’’ er hluti af Íslandsstofu, sem rekin er af hinu opinbera og einkaaðilum, og hefur það markmið að auka samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og örva hagvöxt.

4. Kynning á upptökum á Íslandi
Endurgreiðslur eru í boði frá Íslenska Ríkinu fyrir tónlist sem tekin er upp á Íslandi. Framleiðendur geta sótt um endurgreiðslu upp á 25% af kostnaði sem stofnað er til hér á landi.
Upptökur á Íslandi er átaksverkefni á vegum ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar ásamt Utanríkisráðuneytinu og Tónlistarborgin Reykjavík. Verkefnið er styrkt af Menningar og viðskiptaráðuneytinu.
Kynnir: Leifur Björnsson, frá ÚTÓN.

5. Case Studies
Hinir reyndu framleiðendur Klaudia Smieja-Rostworoska (Madants, Póllandi) og Grímar Jónsson (Netop Films, Ísland) ræða samframleiðsu og önnur áhugaverð mál. Wendy Mitchell kynnir.