Leiðin að sjálfbærri kvikmyndagerð

Íslenski kvikmyndaiðnaðurinn tekur þátt í alþjóðlegu átaki til að takast á við áskoranir í umhverfismálum. Áhersla á sjálfbæra eða græna framleiðslu kvikmynda og afþreyingarefnis er sífellt að aukast. Kvikmyndamiðstöð hefur í samræmi við kvikmyndastefnu stjórnvalda sett sér það markmið að stuðla að sjálfbærni í framleiðslu. Nú er sú krafa gerð með umsóknum um framleiðslustyrki fylgi yfirlýsing um sjálfbærnistefnu og markmið.  Með ábyrgari umgengni við náttúruna tryggir íslenskur kvikmyndaiðnaður stöðu sína til framtíðar. Það mun gagnast bæði iðnaðinum sem og áhorfendum og náttúrunni. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands, Green Producers Club og fyrstu íslensku útskrifuðu ráðgjafana sem eru með græna vottun og vinna undir merkjum USE SEE. Þeir eru jafnframt fulltrúar Green Producers Club á Íslandi. Í umræðunum verður farið yfir þá möguleika, hindranir og lausnir sjálfbær kvikmyndaframleiðsla stendur frammi fyrir.

Dagssetning

Þriðjudagurinn 9. apríl

Staðssetning

Norræna húsið

Tími

16:30

Kynnir

Anna María Karlsdóttir

Kynningin fer fram í Norræna húsinu. Henni lýkur svo á því Hrefna Sigurðardóttir, sýningarstjóri, kynnir sýninguna Wasteland Iceland en á sýningunni er settar fram hugmyndir og tillögur að sjálfbærum og grænum lausnum á vinnslu hráefnis sem annars væri urðað eða sent í orkufreka endurvinnslu.

 

The Green Producers Club

Green Producers Club er þekkingarmiðstöð fyrir skapandi greinar. Hlutverk þess er að auðvelda samskipti og miðla reynslu og þekkingu til notenda tóla félagsins, Green Producers Tool. 

Stefna félagsins er að draga úr kolefnislosun innan skapandi greina í samræmi við Parísarsáttmálan. Markmiðið er að Green Producers Tool hjálpi framleiðendum og auki meðvitund þeirra um sjálfbærni staðla innan menningar- og kvikmyndaiðnaðarins. Félagið rekur skrifstofur í Osló og Kaupmannahöfn og í vor er stefnt á að opna skrifstofu á Íslandi en til stendur að opna fleiri skrifstofur á Norðurlöndum á komandi árum. Liðsmenn á öllum skrifstofum hittast reglulega og bera saman bækur sínar. 

 

Green Producers Tool

Green Producers Tool er byggt á rannsóknum. Það reiknar út hvað framleiðsla losar af koltvíoxíð og hjálpar til við að draga úr þess.  Allar rannsóknir eru gerðar af Cicero – Miðstöð alþjóðlegra loftslagsrannsókna (Center for International Climate Research). 

Green Producers Tool er hægt að aðlaga að mörgum mismunandi geirum menningar eins og kvikmyndum og sjónvarpi, hátíðum, viðburðum, íþróttum og sviðslistum. 

Þá er Green Producers Club í samvinnu við listasýningar og söfn. Helstu samstarfsaðilar verkefnisins eru: Cicero, Øya hátíðin, Nordisk Film Production NO/DK/SE, dönsku tónlistarhátíðirnar Tinderbox og NorthSide, Iceland Airwaves, Norræna hús Íslands og Færeyja, All Things Content (FI), Þjóðminjasafn Noregs og Skíðasamband Noregs. 

Kvikmyndamiðstöð Íslands

Anna María Karlsdóttir

USE SEE

Heather Millard, framleiðandi

Karólína Stefánsdóttir, framleiðandi

Sigríður Rósa Bjarnadóttir, sjálfbær stjórnandi

The Green Producers Club

Brita Holt Vistnes, verkefnastjóri

Mads Astrup Rønning, stofnandi GPC og einn af hönnuðum Green Producers Tool