SKJALDBORG – HÁTÍÐ ÍSLENSKRA HEIMILDAMYNDA Á PATREKSFIRÐI DAGANA 26. – 29. MAÍ 2023

Enginn verður svikinn af heimildamyndaveislu, gæðastundum í Skjaldborgarbíói, skrúðgöngu, plokkfiskveislu, limbókeppni og sumarnóttinni á Patreksfirði.

Skjaldborg er kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og eina íslenska kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar sem sýndar eru í bíóinu Skjaldborg sem staðsett er í hjarta bæjarins. Hátíðarpassi veitir aðgang að allri dagskrá hátíðarinnar, sjávarréttaveislu, plokkfiskboði kvenfélagsins, partýi á laugardagskvöldinu og aðgang í sundlaugina og á tjaldstæðið alla helgina.
Dagskráin verður fjölbreytt og auk heimildamyndaveislu verða kynnt verk í vinnslu, Kvikmyndasafn Íslands sýnir perlur úr sínu safni og Friðgeir Einarsson sýnir fyrirlestrarverkið blessbless.is. Þá verða haldnar pallborðsumræður um framtíð íslenskrar heimildamyndagerðar.
Á lokakvöldi Skjaldborgar heimsækir tvíeykið DJ Ívar Pétur og Hermigervill Félagsheimili Patreksfjarðar sem TWIN TWIN SITUATION á lokakvöldi Skjaldborgar. Í farteskinu verða þeir tvíburar með stútfullar partýtöskur af danstónlist!


Dagskrá og nánari upplýsingar á www.skjaldborg.is