SKL STENDUR FYRIR VINNUSMIÐJU FYRIR HEIMILDAMYNDIR Í VINNSLU

SKL stendur fyrir vinnusmiðju fyrir heimildamyndir í vinnslu. Smiðjan er haldin með stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Vinnusmiðjan er haldin í tvö skipti, það fyrsta í samvinnu við alþjóðlegu heimildahátíðina IceDocs og smiðjan verður 20. – 23. Júlí á Akranesi, seinni smiðjan verður haldin á höfuðborgarsvæðinu í september í kringum Skjaldborgardaginn í Reykjavík.

Smiðjan er fyrir heimildamyndir í vinnslu, hvort sem það er á handritsstigi, í tökum eða klippingu. Í smiðjunni verður lögð áhersla á hið skapandi ferli í kvikmyndagerðinni, frekar en fyrirfram mótaðar hugmyndir og skilgreiningar á heimildamyndum. Eftir sem áður eiga verk sem falla að slíkum skilgreiningum greiðari leið í smiðjuna, en að tilraunakenndari verk og skálduð verk sem vísa í formið eru einnig velkomin. Sjónræn miðlun heimildaefnis er skapandi ferli og blöndun milli miðla hefur rutt sér rúms á undanförnum árum. Þær myndir sem hlotið hafa athygli á kvikmyndahátíðum vinna með mörkin milli miðla. Það sem verður metið við val á verkefnum eru gæði umsóknarinnar, skýr listræn sýn með áherslur á raunveruleikann og kvikmyndamiðilinn sem og áhersla á að fjalla um samtímann á sem áhrifamestan og skapandi hátt og hægt er. Verkefni sem hafa áður tekið þátt í heimildasmiðjunni sem Marta Andreu var ráðgjafi á 2021 og 2022 eru velkomin að sækja um en þurfa að hafa þróað verkefnin síðan þau fengu ráðgjöf síðast.
Gert er ráð fyrir að 5-6 verkefni taki þátt.

Ráðgjafi er Marta Andreu, sem hefur mikla reynslu sem leiðbeinandi, meðal annars verið einn af leiðbeinendum í Torino Film Lab, Eurodoc og Open Doors of Locarno Film Festival og fjölda annara vinnusmiðja. Marta er hluti af World Cinema Fund Program hjá Berlinale síðan 2011, þar velur hún verkefni á ýmsum framleiðslustigum sem hljóta styrki sjóðsins.

Þáttökugjald er 20.000 ISK þar sem innifalið er gisting, morgun og hádegismatur á IceDocs, þáttakendur þurfa að greiða fyrir kvöldverð og ferð akostnað, í Reykjavík þurfa þáttakendur að greiða fyrir fæði, gistingu og ferðakostnað. Ætlast er til að allir þáttakendur taki fullan þátt í báðum smiðjunum og taki sér tíma til að vinna að myndinni sinni á milli smiðjanna.

Verkefnastjóri er Yrsa Roca Fannberg og berast allar fyrirspurnir og umsóknir á netfangið yrsarocafannberg@gmail.com.
Smiðjan fer fram á ensku. og allar umsóknir skulu sendar á ensku á netfangið yrsarocafannberg@gmail.com. Umsóknir eiga að vera á ensku og berast eitt pdf skjal og þarf að innihalda synopsis (max 1 bls), greinagerð leikstjóra (e. Letter of intention) (max 1 bls), treatment sem inniheldur (mögulegar persónur, mögulegar senur/sequences, sjónræna sýn myndarinnar: mynd og hljóð). Nefnd velur út 10 verkefni og áframsendir til Mörtu Andreu sem sér um loka val á þáttakendum.

Umsóknarfrestur er 2. júní 2023.