Úrslitin í Sprettfisk 2023

Á laugardaginn fór fram uppskeruhátíð stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar, með pomp og pragt í Bíó Paradís. Sigurvegarar Stockfish voru tilkynntir og hlutu þeir vegleg verðlaun. Það eru RÚV, Kukl og Trickshot sem leggja til hin rausnarlegu verðlaun að verðmæti 4,8 miljónir króna. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og aðgengilegar í spilara RÚV.

Líkt og í fyrra voru boðið upp á 4 keppnisflokka: Leikið efni, heimildarverk, tilraunaverk og tónlistarmyndbönd. Hámarkslengd í öllum flokkum var 30 mínútur. Það bárust rúm 78 verk inn í keppnina, dómnefndir stóðu því í ströngu við að fara í gegnum í allt efnið. Samkeppnin var hörð og það er ljóst að við eigum mikið af ungu og efnilegu kvikmyndagerðarfólki hér á landi. 

Framleiðendur Felt Cute, þeir Erlendur Sveinsson og Kári Úlfsson

LEIKIÐ EFNI

Sigurvegari í flokki Leikið efni var verkið Felt Cute eftir Anna Karín Lárusdóttir. Dómnefndina skipuðu Björn Thors, Tinna Hrafnsdóttir og Ragnheiður Erlingsdóttir og hlýtur siguverkið að launum eina milljón króna í úttekt frá tækjaleigunni KUKL, 700.000 krónur peningaverðlaun frá RÚV og 200.000 krónar úttekt í formi þjónustu frá Trickshot.

Ummæli dómnefndar

The director of the winning short film takes the audience on an effective journey into the mind of a youth trying to figure out his place in the world. The standout performance of the young actor particularly impressed the jury as well as the strong directorial voice of this tender and touching short film. 

 

Dómnefndin gaf einnig verkinu My Promised Land sérstaka viðurkenningu. 

Ummæli dómnefndar

A special mention goes to a film with a distinctive visual approach. The director is unafraid to blend an exaggerated tone with a traditional period narrative. Exploring such difficult themes as xenophobia and internalized misogyny in a dystopian, almost expressionistic style, transforms this simple story into a bold short film.

Leikstjóri og framleiðandi verksins Keep F****** Going, Marie Lydie Bierne

HEIMILDAVERK

Sigurvegari í flokki Heimildamynda var verkið Keep F****** Going eftir Marie Lydie Bierne. Dómnefndina skipuðu Ingibjörg Halldórsdóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Víðir Sigurðsson og  hlýtur sigurverkið að launum 500.000 krónur í úttekt frá tækjaleigunni KUKL, 700.000 krónur peningaverðlaun frá RÚV og 200.000 krónar úttekt í formi þjónustu frá Trickshot.

Ummæli dómnefndar

The winning film gently welcomes the audience into an intimate space, where a group of people who don’t feel accepted within the norms of society share their darkest moments. They have created a space where “weirdness” is celebrated, not just accepted. The subjects are honest and the director obviously has their trust. 

The film is personal, moving and well crafted.

 

Alda Ægisdóttir, leikstjóri verksins Story of a Blue Girl.

tilraunaverk

Verkið Story of A Blue Girl, eftir Öldu Ægisdóttir var sigurvegari í flokki Tilraunaverka. Dómnefndina skipuðu Hilke Rönnfelt, Sunneva Weisshappel og Vigdís Jakopsdóttir og  hlýtur sigurverkið að launum 250.000 krónur í úttekt frá tækjaleigunni KUKL, 300.000 krónur peningaverðlaun frá RÚV og 200.000 krónar úttekt í formi þjónustu frá Trickshot.

Ummæli dómnefndar

A mesmerizing journey that invites the viewer into a universe that the filmmaker created with originality, skill and a singular personal vision. As a viewer you are eager to see this world expand. 

Erlendur Sveinsson, leikstjóri tónlistarmyndbandsins Ásgeir - Snowblind.

TÓNLISTARMYNDBAND

Tónlistarmyndbandið Ásgeir – Snowblind eftir Erlend Sveinsson var sigurvegari í flokki Tónlistarmyndbanda. Dómnefndina skipuðu Eilífur Örn Þrastarson, Hrefna Hagalín og Dóra Jóhannsdóttir og hlýtur sigurverkið að launum 250.000 krónur í úttekt frá tækjaleigunni KUKL, 300.000 krónur peningaverðlaun frá RÚV og 200.000 krónar úttekt í formi þjónustu frá Trickshot.

Ummæli dómnefndar

SNOWBLIND is an artistic and thought-provoking music video which truly stood out. The video’s dystopian atmosphere was beautifully juxtaposed with the stunning natural landscapes of Iceland, creating a hauntingly beautiful and eerie ambiance.

The story was powerfully conveyed through striking visuals and emotionally charged performances. The use of lighting, color, and sound design helped to enhance the overall mood and tone of the video.

Overall, we found this music video to be captivating and compelling blending storytelling skillfully with visual aesthetics.