In The Rearview

In the Rearview sýnir áreiðanlega og persónulega ásýnd af stríði. Heimildarmyndin fylgir kynslóðum Úkraínumanna sem flýja hafa þurft heimili sín og reiða sig á aðstoð leikstjóra myndarinnar, Maciek Hamela, sem ferðast um stríðshrjáða Úkraínu á litlum sendiferðabíl. Maciek þarf að keyra í gegnum jarðsprengjusvæði til þess að koma flóttamönnunum til Póllands í öruggt skjól. Maciek býður okkur sæti meðal flóttamannanna og stýrir bílnum um leið og hann stýrir heimildarmyndinni á bak við myndavélina. Bíllinn verður athvarf fyrir farþeganna á meðan hann keyrir þúsundir kílómetra í gegnum landslagið Úkraínu og þjónar sem spítali, skjól og afdrep fyrir farþega til að geta deilt sín á milli trúnaðarmálum og játningum. In the Rearview er safn svipmynda sem segir frá upplifum fjölda Úkraínumanna sem hafa það eitt að markmiði: að finna örugga höfn í miðjum átökum. Í þessu skammtímaathvarfi er kyn, aldur, húðlitur, líkamsástand, uppruni, heimsmyndir og trú farþeganna óháð öllu. Þótt stríðið haldi áfram í bakgrunninum eru áhrif þess skýr.

Kvikmyndin hlaut verðlaun fyrir besta heimildamyndin á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Chicago.

Sýningartímar

  • 7. apríl 17:00
  • 9. apríl 21:45
  • 12. apríl 19:00
Leikstjóri:
Maciek Hamela
Lengd:
84 mín
Ár:
2023
Tungumál:
Franska, úkraínska, pólska, rússneska, enska