Opið fyrir innsendingar í Verk í vinnslu

Stockfish Festival er búið að opna fyrir innsendingar í Verk í Vinnslu. Með þátttöku gefst aðstandendum kvikmyndaverka sem ekki eru tilbúin til sýningar einstakt tækifæri til að kynna verkefnin sín fyrir innlendum og erlendum fjölmiðlum, framleiðendum sem og öðrum áhugasömum. 

Verkefnin sem verða fyrir valinu geta átt þess kost að eiga aukna dreifingar- og kynningar möguleika bæði hér á Íslandi og erlendis. 

Þátttakendur sýna 3-7 mínútna myndbrot úr verkum sínum og að því loknu taka aðstandendur myndarinnar við spurningum úr sal. 

Mikill áhugi hefur myndast fyrir þessum viðburði undanfarin ár hjá erlendum blaðamönnum og listrænum stjórnendum annara hátíða. Einnig er þetta kjörinn vettvangur fyrir kvikmyndagerðafólk alls staðar að til að hittast og mynda tengsl. 

Streymt verður beint frá atburðinum fyrir þá sem hafa ekki tök að mæta á staðinn í persónu.

Skráðu þitt verk í “Verk í Vinnslu” 

Opnað fyrir innsendingar: 8 Febrúar 2023

Lokadagur innsendingar: 1 mars 2023

Frekari upplýsingar gefur:

Matej Janiga
Verkefnastjóri Stockfish Festival 
events@stockfishfestival.is