Opið fyrir innsendingar í sprettfisk

Vegleg verðlaun í boði fyrir Sprettfisk 2023!

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í níunda sinn dagana 23. mars – 2. apríl í Bíó Paradís. Umsóknarfrestur stendur til 4 mars.

Keppt verður í og verðlaunað fyrir fjóra flokka:

BESTA LEIKNA STUTTMYNDIN

BESTA STUTTA HEIMILDAMYNDIN

BESTA STUTTA TILRAUNAMYNDIN

BESTA TÓNLISTARMYNDBANDIÐ

Flokkarnir eru fjórir til að endurspegla þá grósku og fjölbreytni sem er í kvikmyndagerð hér á landi. Markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja það til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni. Verðlaunin koma frá KUKL tækjaleigu, Trickshot eftirvinnslu og RÚV. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og verða aðgengilegar í spilara RÚV.

VERÐLAUN

Besta leikna stuttmyndin

KUKL 1.000.000 úttekt á tækjum

RÚV 700.000 reiðufé

TRICKSHOT 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Best stutta heimildamyndin

KUKL 500.000 úttekt á tækjum

RÚV 700.000 reiðufé

TRICKSHOT 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Besta stutta tilraunamyndin

KUKL 250.000 úttekt á tækjum

RÚV 300.000 reiðufé

TRICKSHOT 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Besta tónlistarmyndbandið

KUKL 250.000 úttekt á tækjum

RÚV 300.000 reiðufé

TRICKSHOT 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Þáttökuskilyrði

Myndin þarf að vera hámark 30 mín í lengd. Framleiðslu ekki lokið fyrir janúar 2022 og íslensk frumsýning nú á Stockfish 2023.

Aðeins íslensk verk eru tekin til greina þar sem höfundur/leikstjóri og/eða framleiðandi er íslenskur.

Tónlistarmyndbönd koma aðeins til greina ef leikstjórinn er íslenskur.

Tónlistarmyndbönd skulu gerð eftir frumsömdu lagi.

Innsendingar eru ókeypis og fara í gegnum filmfreeway.com. 20 stuttmyndir sem valdar verða til keppni verða sýndar á sjálfri hátíðinni.