Bransadagar 2023

Bransadagarnir halda áfram að vaxa sem vettvangur fyrir öflugt samtal innan greinarinnar. Tilgangur þeirra er að gefa rými til að tengja fólk saman og mynda sterk og gagnleg sambönd milli fagfólks í íslenskri og erlendri kvikmyndagerð. En einnig að skapa og opna tækifæri fyrir fjölbreytni og nýsköpun í greininni. 

Um fjörutíu alþjóðlegir gestir sækja hátíðina heim á hverju ár, aðallega fjölmiðlafólk og fagfólk úr iðnaðinum sem kemur sérstaklega til að taka þátt Bransadögum. Þess má geta að eftir síðustu hátíðir hafa orðið til fjölmörg viðskiptasambönd þar sem íslensk kvikmyndaverk fengu meðframleiðendur og styrki erlendis frá eða öfugt vegna tengsla sem mynduðust  á hátíðinni.

Stockfish stendur fyrir ýmsum viðburðum, kvöldverðum, kynningum, gleðistundum og móttökum þar sem gefast kjörin tækifæri til að mynda ný tengsl eða styrkja þau gömlu.Auk þess gefa opnunar- og lokahóf alltaf tækifæri til frekara spjalls og tengslamyndunar.

„Stockfish kvikmynda-og bransahátíðin skiptir máli og við erum komin til að vera“

 

Opnar umræður 

Góðir gestir hvaðanæva úr heiminum fylgja myndum sínum eftir, sitja fyrir svörum og taka þátt í opnu samtali um sköpunar-og framleiðsluferli myndanna. Áhersla verður lögð á tvö meginþemu:

  1. Samtal/samstarf leikstjóra og klippara
  2. Þá fínu línu sem er á milli skáldaðra kvikmynda og heimildamynda.

Umræða er leidd af stjórn hátíðarinnar og öðru fagfólki í kvikmyndagerð og mun vonandi varpa ljósi á hvar við stöndum, hvað skiptir mestu máli fyrir greinina og hvernig við sjáum hana þróast.