Unglingsstúlka vingast við ungan dreng í Belgíu. Þau höfðu bæði flúið ein síns liðs frá Afríku og eiga engan að á framandi slóðum. Þau mynda bandalag til að lifa af í nýju landi þar sem örlög þeirra ráðast. Þótt aðstæður þeirra séu óréttlátar og þau þurfa að upplifa illa meðferð þá er þetta saga um vináttu, fallega og djúpstæða vináttu sem bregst ekki hvað sem á dynur.