STOCKFISH KYNNIR TIL LEIKS FIMM FYRSTU TITLANA

Stockfish Film Festival kynnir til leiks fyrstu fimm myndirnar sem valdar hafa verið á hátíðina. Kvikmyndirnar eru fjölbreyttar, sumar hjartnæmar og fallegar, aðrar gamansamar eða á dýptina. Enn aðrar fjalla um þær hörmungar sem stríð og fátækt kalla yfir fólk.

En allar eru þær einstakar hver á sinn hátt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal viðfangsefna eru vinátta tveggja ungra drengja, Evrópa séð með augum asna, brjálaður embættismaður á tímum Sovétríkjanna, konur í fangelsi og stríðið í Úkraínu séð með augum kvikmyndagerðarmannsins.

Stockfish mun halda áfram að kynna metnaðarfulla dagskrá þar sem við bjóðum upp á valdar alþjóðlegar verðlaunamyndir ásamt ýmsum sérsýningum. Með myndunum koma gestir víðsvegar að úr heiminum.

close

tilnefnd til óskarsverðlaunanna sem besta erlenda myndin 2023

Leikstjóri: Lukas Dhont. Belgía, Holland, Frakkland. 2022

„Close“ er hluti af dagskrá Stockfish þar sem lögð er áhersla á kvikmyndir sem hlutu verðlaun eða tilnefningu til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem haldin voru í Reykjavík í Desember 2022. Myndin segir frá innilegri vináttu tveggja 13 ára drengja, Leó og Remí, sem slitnar upp úr án fyrirvara. Leó á erfitt með skilja hvað gerðist og fer til móður Remí til að reyna fá útskýringar. Myndin er lauslega byggð á reynslu leikstjórans.


Myndin hlaut dómnefndarverðlaun Grand Prix á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2022

Tilnefnd sem besta Evrópska kvikmyndin á European Film Awards 2022.

Close er ein af kvikmyndunum sem mynda LUX kvikmyndahornið á Stockfish, en það er styrkt af Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi.


Alain Dessauvage, klippari Close, verður viðstaddur í ,,spurt og svarað” umræðu á “Stockfish Open Talks.”

MARIUPOLIS 2

BESTA HEIMILDARMYNDIN Á EVRÓPSKU KVIKMYNDAVERÐLAUNUNUM 2022

Leikstjóri: Mantas Kvedaravičius. Litháen, Frakkland, Þýskaland. 2022

Árið 2022 fór kvikmyndagerðarmaðurinn Mantas Kvedaravičius til, Mariupol í Úkraínu til að vera með fólkinu sem hann hafði kvikmyndað árið 2015. Kvedaravičius lést í stríðinu en eftir dauða hans ákváðu samstarfsmenn og framleiðendur hans að halda upp hans heiðri með því að miðla verkum hans og framtíðarsýn til áhorfenda. Verk Kvedaravičius talar á áhrifaríkan hátt beint inn í það ástand sem ríkti í Úkraínu vorið 2022 og ríkir því miður enn.

EO

TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNANNA SEM BESTA ERLENDA MYNDIN 2023

Leikstjóri: Jerzy Skolimowski, Pólland, Ítalía 2022

Stockfish í samstarfi við Pólska sendiráðið kynnir yfirlitssýningu á verkum Jerzy Skolimowski.

EO er grár asni, fæddur í fjölleikahúsi. Við fylgjum honum á ferðalagi hans í gegnum nútíma Evrópu og sjáum ferðalagið með hans djúpu og döprum augum. Hann kynnist góðu og slæmu fólki en tapar aldrei sakleysi sínu. Myndin er innblásin af verki Bresson frá 1966 um asnan Balthazar. Hugljúf og gamansöm mynd sem hefur farið sigurför um heiminn og snertir á málefni sem er okkur öllum mikilvægt.

Tilnefnd til Óskarsverlauna sem besta erlenda myndin 2023

Besta tónlistin á European Film Awards 2022

Dómnefndarverðlaun á Cannes kvikmyndahátíðinni 2022

THE RISE AND FALL OF COMRADE ZYLO

Leikstjóri: Fatmir Koçi. Albanía 2022

Myndin byggir á albanskri skáldsögu, sem gerist á tímum Sovétríkjanna á áttunda áratugnum. Hún segir frá hetjudáðum embættismannsins Zylo sem starfar í Menntamálaráðuneytinu. Til að heilla yfirmenn sína fær Zylo Demka, upprennandi rithöfund til að skrifa fyrir sig stórkostlegar ræður og skýrslur.

Allt saman byggt á lygilegum kenningum Zylo.

Leikstjóri myndarinnar Fatmir Koçi og framleiðandi hennar Mike Downey verða viðstaddir ,,Spurt og svarað” í tengslum við „Stockfish Open Talks.”

107 MOTHERS

TILNEFND TIL FJÖLDA VERÐLAUNA M.A EVRÓPSKU KVIKMYNDAVERÐLAUNANNA, SEM UPPGÖTVUN ÁRSINS 2022

Leikstjóri: Péter Kerekes. Úkraína, Slóvakía, Tékkland. 2021

Í Odesa kvennafangelsinu í Úkraínu er mæðrum leyft að afplána dóm sinn með börnum sínum þangað til að þau til verða þriggja ára. Við fylgjumst með líf þessara kvenna ásamt börnum þeirra og fangelsisvörðunum.

„Þessi viðburður er hluti af KÓSÝ KINO, sem er verkefni styrkt af Íslandi, Liechtenstein og Noregi í gegnum EEA. Einnig hefur ríkkissjóður Slóvakíu verið hluti af þeim styrk.“

Leikstjóri myndarinnar Péter Kerekes, verður viðstaddur “spurt og svarað” pallborðsumræðum tengda “Stockfish Open Talks.”