LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR

ÍSLENSKU HEIÐURSVERÐLAUN STOCKFISH

Heiðursverðlaun Stockfish eru veitt fyrir afburðarframlag til kvikmyndagerðar. Verðlaunin eru veitt fagmönnum á akademískum, framleiðslu-, dreifingar-, markaðs- og kvikmyndahátíðarsviðum. Íslensku heiðursverðlaun Stockfish 2024 hlýtur: 

Laufey Guðjónsdóttir

Laufey gekk til liðs við Kvikmyndamiðstöð Íslands árið 2003 og byggði hana upp. Hún starfaði hjá Kvikmyndamiðstöðinni í 20 ár eða allt til ársins 2023. Áður var hún dagskrárstjóri á RÚV. Laufey er með yfir 30 ára reynslu að baki í fjármögnun kvikmynda og sjónvarpsefnis, kaupum á sjónvarpsefni, framleiðslu, dagskrárgerð, kvikmyndakynningum, gangsetningu og stjórnun stórra menningarverkefna. Hún hefur einnig verið fulltrúi margra alþjóðlegra samtaka á sviði kvikmynda, fjölmiðla, lista og annarra skapandi greina.